Coogan hefur annars skrifað fjölda metsölubóka, þ.e. ævisagna, m.a. um slíkar hetjur sem Michael Collins og Eamon de Valera. Þá hefur hann skrifað bækur um IRA og The Troubles (á Norður-Írlandi). Þjóðþekktur maður á Írlandi í meira lagi.
Tuesday, August 06, 2002
Gaman að þessu: var staddur í bókabúð í Mílanó. Tók að fletta bók eftir írska blaðamanninn og þjóðfélagsrýninn Tim Pat Coogan, Wherever Green is Worn - The Story of the Irish Diaspora, sem kom út í hitteðfyrra. Nema hvað, haldiði ekki bara að ég hafi fundið nafn mitt í indexnum aftast! Þá sér Coogan ástæðu til að minnast á mig á bls. 18 í umfjöllun um heimsókn hans hingað til Íslands fyrir nokkrum árum en ég tók viðtal við hann fyrir Moggann.
Coogan hefur annars skrifað fjölda metsölubóka, þ.e. ævisagna, m.a. um slíkar hetjur sem Michael Collins og Eamon de Valera. Þá hefur hann skrifað bækur um IRA og The Troubles (á Norður-Írlandi). Þjóðþekktur maður á Írlandi í meira lagi.
Coogan hefur annars skrifað fjölda metsölubóka, þ.e. ævisagna, m.a. um slíkar hetjur sem Michael Collins og Eamon de Valera. Þá hefur hann skrifað bækur um IRA og The Troubles (á Norður-Írlandi). Þjóðþekktur maður á Írlandi í meira lagi.
Wednesday, May 15, 2002
Ég sé að mér hefur tekist að ergja Stefán Pálsson með ummælum mínum um það, sem Sara Flounders hafði að segja í Silfri Egils á sunnudag. Stefán segir:
"Menn geta verið sammála því sem Sara Flounders hefur að segja eða ósammála, en það er ótrúlegur hroki þegar blaðamenn sem skotist hafa í tvær til þrjár pakkaferðir á vegum NATO telja sig geta blásið á skoðanir hennar með þeim orðum að "svona fólk sé ekki í jafnvægi". - Nú tel ég mig þekkja nógu vel til á Mogganum að vita að stórmennskubrjálæði er ekki forsenda þess að blaðamenn séu ráðnir þar til starfa,... en það hjálpar."
Nú veit ég ekki að hverju Stefán er að ýja, t.d. varðandi "pakkaferðir á vegum NATO". Kannast ekki við að hafa farið í slíkar ferðir.
Veit Stefán betur? Heldur hann t.d. að ég hafi verið í "pakkaferð" á vegum NATO í Kosovo? Það er best ég leiðrétti þann misskilning, ég starfaði um níu mánaða skeið hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) í Kosovo. Þetta var semsé býsna löng pakkaferð.
Ég held líka að ég geti alveg lýst skoðunum hér á málflutningi Söru Flounders án þess að það tengist sérstaklega vinnustað mínúm.
Loks er athyglisvert að sagnfræðingurinn Stefán getur ekki vísað rétt í ummæli mín. Hið beina "kvót" sem hann hefur eftir mér hljómar reyndar svona: "Fólk sem sér ekkert nema samsæri er ekki alveg í jafnvægi."
Held ekki að ég þurfi að þjást af stórmennskubrjálæði til að hafa þótt framlag Flounders lítt merkilegt. En ég gæti haft rangt fyrir mér.

Það er rétt hjá Agli Helgasyni þessi frétt úr The Independent er afar áhugaverð. Miðað við frásögn Roberts Fisks var það víst ekkert sérstaklega klókt af honum að tala gagnrýnið um afskipti Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum svo skömmu eftir árásirnar 11. september sl.
Annars er ég að glugga í nýja bók eftir Joe Klein, sem heitir The Natural - The Misunderstood Presidency of Bill Clinton. Hér er linkur í dóm NYT um hana. Hún virðist athyglisverð, kannski ekki síst vegna þeirrar innsýn sem Klein auðvitað hafði. Klein er auðvitað þekktur fyrir að hafa ritað bókina Primary Colours - þó að hann hafi upphaflega ritað hana undir dulnefninu Anonymous þá komst upp um hann um síðir.

Það var nóg að gera fyrir mig á NATO-fundinum í gær. Gaman að þessu. Svo drattaðist ég á fætur kl. 6 í morgun til að "covera" fund þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Colins Powells. Náði meira að segja að koma spurningu á utanríkisráðherrann bandaríska.
Þetta fer í úrklippubókina (s.s. þá sem ég geymi í höfði mínu). Ekki á hverjum degi sem maður varpar fram spurningum til slíkra manna.
Annars sá ég að Pressan birti þetta í gær, upp úr Viðhorfi mínu í þriðjudagsblaðinu:
Ummæli dagsins
„Er raunar merkilegt að Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur sagt, að hann vilji ræða Evrópumálin á málefnalegum nótum og sanngjörnum, en þó nefnir hann sjaldnast nema hugsanlega galla, lætur nánast sem kostirnir séu engir. “
Davíð Logi Sigurðsson blaðamaður
(Morgunblaðið)
Ekki á hverjum degi heldur sem maður er talinn eiga ummæli dagsins!! Ekki einu sinni hinir háu herrar, sem hingað til lands voru komnir, gátu skákað mér!
Sussumsvei, er það nú vitleysa.
XXXXXXXXXXXXXXXX
Ég held að maður þurfi barasta ekkert að fara að sjá nýju Star Wars myndina. Hún fær alveg herfilega útreið í The Washington Post í dag.

Monday, May 13, 2002
Spurning annars hvort maður bregður sér í kokkteil hjá borgarstjóra í kvöld. Fékk boðsmiða þegar ég sótti blaðamannapassann áðan í Tæknigarð vegna NATO-fundarins, en það er búið að úthluta mér verkefni á fundinum á morgun. Fer semsé og fylgist með viðræðum NATO og Rússa, sem ætti að geta verið spennandi.
Á ekki alltaf að sækja kokkteila, ef maður kemst í slíkt?

"Hann þekkir ekki Moggann og þá sem þar starfa," segir Sverrir Jakobsson í umfjöllun sinni um einn fyrirlesara friðarráðstefnunnar um helgina. Maður á líklega að túlka þetta sem vantraustsyfirlýsingu - en á maður eitthvað að vera að taka mark á fólki sem kallar umfjöllun um yfirlýsingar yfirmanna NATO "áróður" en atburði eins og áðurnefnda ráðstefnu "frétt"?
Annars fannst mér framlag Söru Flounders í Silfri Egils ekki merkilegt. Fólk sem sér ekkert nema samsæri er ekki alveg í jafnvægi. Umfjöllun hennar um Balkanskagann var út í hött, en ég hef svo sem heyrt þetta áður. Á einhverja bók heima, þar sem fólk af sama sauðarhúsi hellir úr skálum reiði sinnar vegna umfjöllunar fjölmiðla um Kosovo-stríðið. Harold Pinter leikritaskáld skrifar formála og gengur alltof, alltof langt...
En ef ég er ekki vinstrimaður, eins og þetta blessaða fólk, sem sér heiminn þessum augum, hvað er ég þá?
Sannarlega er ég ekki Heimdellingur - held ég hafi ekki séð neitt í kosningabaráttunni hér í Reykjavík, sem er jafn líklegt til að hafa afgerandi áhrif á afstöðu mína, og innlegg Heimdellinga í göngu R-listans um miðbæ Reykjavíkur á sunnudag. Það var sagt frá þessu á Stöð 2 í gær og einhvern veginn efast ég um að þeir sem stýra kosningabaráttu D-listans hafi verið ánægðir. Varla trúa þeir því að fólk ákveði að kjósa D út á svona strákapör?
XXXXXXXX
Talandi um Silfur Egils, þá hefði mér fundist að Egill hefði getað valið viðmælendur sína betur í umræðunni um fjölmiðla á Íslandi. Það var ekki heil brú í því sem Herdís Þorgeirsdóttir var að segja og þó að þeir Ásgeir Friðgeirsson og Hrafn Jökulsson hafi ekki staðið sig illa finnst manni að ástæða hefði verið til að hafa einhverja frá "alvöru" miðlunum (helst þungaviktarmenn), DV eða Morgunblaðinu.

Friday, May 10, 2002
Annars hafa Evrópumál og Árnamál verið helst í fréttum í vikunni. Það væri nú að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um það hér, nóg ræðir maður nú um þau mál samt við bæði vini og vinnufélaga.
XXXXXX
Á morgun halda tíu ára stúdentar úr FB smá veislu á Astro. Við höfum að vísu reynt að láta þau boð út ganga að ekki sé bráðnauðsynlegt að menn hafi útskrifast vorið 1992, að gaman væri að fá að sjá aðra, sem t.d. útskrifuðust önn áður/síðar, enda mikilvægara að fá gott partí heldur en halda sig í formlegheitin. Ekkert er nú bekkjarkerfið í FB og því stundum annað sem réði því, hverjir urðu vinir manns og kunningjar, heldur en beinlínis með hverjum þú útskrifaðist.
En semsé, þetta ætti að gera orðið gaman. Það verður fullt af fólki sem maður ekki hefur hitt um árabil.
XXXXXX
Það vantaði víst linkinn á dóminn um Spiderman. Voilá!

Fyrst ég er farinn að tala um Spiderman þá er best að vitna líka til dóms NYT um hana. Þeir eru sammála mér þar um aðalleikarann.
Að vísu er það með myndir sem þessa, að fyrri hlutinn er alltaf betri en sá síðari - því að maður veit að síðari hlutinn er um uppgjörið milli "góða" gæjans og þess vonda. Og alltaf veit maður nú hvernig það fer!

Ekki fær nú nýja Star Wars-myndin ýkja góða dóma hjá stórblaðinu The New York Times. Raunar sagði vinur minn mér, sem hefur séð myndina, að hún sé vonbrigði. Sagan sé klén. Það fannst mér líka um þá fyrri (semsé þá fyrri í seinni umferð - en sem samt á að gerast fyrr en hinar þrjár!) - hún var illa leikin og framvindan klúðursleg.
Sá hins vegar Spiderman í gær og fannst hún bara fín! Kannski aðeins of löng - en það slapp. Kannski er það Tobey Maguire, sem er góður leikari. Það gátu menn séð í The Ice Storm, The Cider House Rules og Wonder Boys.

Wednesday, May 08, 2002
Þetta er einkar vel heppnaður pistill hjá Agli Helgasyni. Forsætisráðherra biður um málefnalega umræðu um Evrópumál - en gefur síðan til kynna að þeir hljóti að vera galnir sem vilja ganga í ESB. Geta varla talist mjög málefnaleg ummæli.
Tuesday, May 07, 2002
Annars hef ég þær upplýsingar frá skrifstofu stjórnmálafræðiskorar að 29 hafi skráð sig í námskeið mitt og Arnars Þórs Mássonar, Þjóðernishyggja og þjóðernisátök, sem við munum kenna við Háskólann á vorönn 2003. Það er hreint ekki svo slæmt.
Og að öllum líkindum munum við þurfa að drepa víða niður, m.a. í Mið-Austurlöndum, þó að Kosovo og Norður-Írland séu nú meira á mínu sérsviði, ef svo má að orði komast.
Við kenndum námskeiðið á haustönn 2000 og það gekk svona bærilega, þó að ég hafi aldrei kennt áður. Stakk að vísu frá allri prófayfirferð og skildi Arnar eftir í þeirri súpu - friðargæslan í Kosovo kallaði.

Hasar á vaktinni í kvöld - allt farið af stað í Mið-Austurlöndum að nýju?
Þetta er annars grátlegt. Þegar annar aðilinn sýnir smá vit og lætur undan þrýstingi - hættir hernaðaraðgerðum - tekur hinn upp þráðinn þar sem frá var horfið og hleypir öllu í bál og brand á nýjan leik.
Sýnir best hvernig það eru ekki hreinar línur í þessu, þó að samúð manna hafi réttilega verið með Palestínumönnum að undanförnu. Þessi árás í kvöld er þó hins vegar engan veginn til framdráttar, og raunar alveg ótrúlegt að gera svona núna.
Svo voru einhver flugslys og svona - eintómur dauði og djöfull á forsíðunni á morgun. Því miður.

Á sunnudag fór ég á borgarafundinn í Ráðhúsinu, þar sem fulltrúar framboðanna í Reykjavík stóðu fyrir máli sínu. Þetta var hin versta samkunda. Ekki bara af því að spurningar og svör voru manni lítil aðstoð við að ákveða hvað skuli kjósa, heldur vegna MORFÍS-stemmningarinnar úti í sal. Þar klöppuðu menn í gríð og erg fyrir sínu fólki, í viðleitni til að kaffæra stuðningsmenn andstæðingsins.
Ég sat sem fastast og klappaði hvergi. Leið eiginlega hálf illa yfir öllu saman - hélt ekki að þetta yrði sandkassaslagur!
Sýnir hvað ég er naív.

Ég hef aldrei spilað snóker af neinu marki enda er leikurinn fjári erfiður. Menn halda að það sé enginn munur á snóker og billjarð en komast síðan gjarnan að öðru, eiga í erfiðleikum með að hitta kúlurnar í snóker, hvað þá að koma þeim niður!
Ég bjó veturinn 1994-1995 á Írlandi og datt í það um páskana 1995 að horfa á heimsmeistarakeppnina í snóker, sem BBC sýnir alltaf beint. Þá komst ég að því að þetta er hið skemmtilegast sjónvarpsefni. 1996-1997 var ég í Belfast og datt þá í það sama fyrir algera tilviljun. Held það hafi verið þá sem Ronnie O'Sullivan kláraði 147 (þ.e. kláraði borðið með hæstu mögulegu stigatölu) á einhverjum tæpum fimm mínútum. Ekkert smá góður.
En ég hélt samt alltaf með Peter nokkrum Ebdon fyrir einhverra hluta sakir. Get ekkert útskýrt það, er ekki einu sinni viss um að hann teljist neitt sérstaklega flínkur miðað við O'Sullivan eða Stephen Hendry. Hann er meira svona í stíl við Steve Davis, varkár og "leiðinlegur" spilari. Hvað um það - ég ákvað bara 1995 að þetta væri minn maður og þar við sat.
Svo gat hann aldrei neitt. Fyrr en í ár. Hann lagði Hendry í úrslitaleiknum í gær. Hans tími er kominn.
XXXXXXXXXXXX
Sé að Sverrir Jakobsson hefur farið í einhverja fýlu yfir skrifum á Pressunni um þessi "blogg" hans. En við hverju búast menn - halda þeir að hægt sé að formæla fólki úti í bæ á Netinu án þess að menn þurfi að standa nokkur skil á því? Verð að segja, að mig hafði undrað þessar blammeringar á Stefán Jón Hafsten og aðra.

Saturday, May 04, 2002
Er páfinn kaþólskur? Hér er ágæt grein um vanda kaþólsku kirkjunnar sem mátt hefur taka á fjölda hneykslismála að undanförnu. Ég fylgist jafnan með fréttum um þetta efni eftir veturinn sem ég eyddi við St Patrick´s College í Maynooth á Írlandi 1994-95 en í gegnum tíðina hefur Maynooth gegnt hlutverki höfuðstöðva kaþólsku kirkjunnar á Írlandi. Merkilegt fyrir bersyndugan Íslending frá spillingarbælinu Reykjavík (a.m.k. ef eitthvað er að marka nektarstaðaumræðuna undanfarna daga) að dvelja í svona bæ.
Í gærkvöldi fór ég á barinn Áslák í Mosfellsbæ. Var ekki mín hugmynd, trúið mér, en svo sem fyndið að breyta stundum til. Um gleðina þar bera fæst orð minnsta ábyrgð.